157. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[14:34]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Það eru nokkrar mínútur í atkvæðagreiðslu og loksins kom stjórnarliði sem gekkst við því hvað felst í því að ganga í Evrópusambandið. Við vorum í nærri heila viku að ræða þetta, margar vikur að slást um þetta í hv. utanríkismálanefnd og loksins kom hér hv. þm. Pawel Bartoszek og gekkst við ýmsu sem menn hafa verið að spyrja um, hafa svo sem vitað, var aldrei lagt fyrir nefndina, hefur aldrei verið kynnt fyrir þjóðinni. En við erum alla vega komin á þann stað núna nokkrar mínútur í atkvæðagreiðslu að við erum að ræða um það að ESB-rétturinn gildi ef við göngum í Evrópusambandið, hann gildir ef við göngum í Evrópusambandið. Það þýðir að við getum aldrei verið gegn gerðum Evrópusambandsins eins og þær eru kallaðar, það er faktískt ekkert til sem heitir lög, þetta eru gerðir. Þetta eru reglugerðir, tilskipanir, ákvarðanir, tilmæli og álit. Það sem er bindandi eru reglugerðirnar, tilskipanirnar og ákvarðanirnar. Tilmælin eru ekki bindandi en þau eru pólitísk eða stjórnsýsluleg leiðsögn, ekki lagalega bindandi og álitið er heldur ekki bindandi en getur haft pólitískt eða túlkunarlegt vægi. Það kom fram í orðaskiptum hv. þm. Diljár Mistar Einarsdóttur og Pawels Bartoszeks hvernig þessar ákvarðanir teknar. Við vitum það og hv. þm. Pawel Bartoszek fór yfir það að við erum með Evrópuþingið sem hann taldi að væri ekki með mikil völd og það má segja að það sé mikill kostnaður en kannski ekki mikil völd ef þessir 750 Evrópuþingmenn mega ekki flytja frumvörp. Það getur bara komið frá framkvæmdastjórninni en á milli hefur ráðherraráðið tekið ákvarðanir þar um.

Virðulegur forseti. Loksins er það upplýst, sem var svo sem alveg hægt að fletta upp en hefur ekki verið kynnt af stjórnvöldum, að í ráðherraráðinu taka menn ákvörðun með meiri hluta. Einhver kynni að segja: Heyrðu, við getum bara alltaf smalað einhverjum saman í lið með okkur af því að þetta hlýtur að vera einn maður, eitt atkvæði. Nei, nei, nei, virðulegur forseti. Það er ekki einn ráðherra, eitt atkvæði. Á bak við ráðherrann er íbúafjöldi þjóðarinnar þannig að það er mjög auðvelt fyrir smáþjóð að vera í minni hluta. Framkvæmdastjórnin er þannig skipuð að þótt það sé, alla vega núna þó það séu hugmyndir uppi um að breyta því, einn fulltrúi frá hverju þjóðríki þá er þeim bannað í störfum sínum að gæta hagsmuna síns lands. Ég var líka ánægður með það sem hefur ekki komið fram, að hv. þm. Pawel Bartoszek sagði okkur frá því að það verði gríðarlegur kostnaður við hagsmunagæslu í þessu og benti á að það hefði verið gagnrýnt. Jú, við höfum gagnrýnt það, vegna þess að það kemur fram í öllum þeim skjölum sem við höfum skoðað varðandi síðustu aðildarumsókn — t.d. eins og bara samningurinn sem var gerður um aðlögun sem er enn þá í gildi milli framkvæmdastjórnar ESB og íslensku ríkisstjórnarinnar, því að ef aðildarumsóknin er í gildi þá er hann í gildi líka, sú þingsályktun sem var samþykkt þá — að það þurfi að gera mjög margt til að bæta íslensku stjórnsýsluna til þess að við getum orðið aðilar að Evrópusambandinu.

Nú eru menn að tala um að þetta sé ekki óafturkræft. Veit ekki. Við þyrftum að kaupa tölvukerfi til að flækja tollaumhverfi okkar upp á 3,8 milljarða og það verður að vera tilbúið, uppsett og prufukeyrt, eins og kemur fram í gögnum frá þessum tíma. Ég veit ekki hvað við myndum gera við það ef við gengjum ekki inn. Eigum við að henda því? Það er enginn markaður fyrir tölvukerfi fyrir tollkerfi Evrópusambandsins. Við erum búin að fjölga starfsmönnum Tollsins um nokkur hundruð. Það er kannski alveg hægt að fara í fjöldauppsagnir. Það hefur gengið einstaklega vel hjá opinberum aðilum að segja upp fólki.

Virðulegur forseti. Það er sorglegt, svo ég hrósi nú hv. þm. Pawel Bartoszek fyrir að gangast við því sem augljóst er, en það sýnir samtalið sem hefur verið hérna í þingsalnum síðustu mínúturnar — og það eru nokkrar mínútur í atkvæðagreiðsluna — það sýnir hvað það hefur verið mikill feluleikur í kringum þetta mál. Það að hæstv. utanríkisráðherra hafi ekki gengist við ESB-réttinum hérna áðan, hafi ekki gengist við aðlöguninni hérna áðan, hafi ekki gengist við því að við yrðum partur af sameiginlegu sjávarútvegsstefnunni, þó að hv. þingmaður utanríkismálanefndar (Forseti hringir.) hafi nú viðurkennt þetta allt saman — það að hæstv. ráðherra geri það ekki þýðir að hæstv. ráðherra er að dreifa falsfréttum.