157. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[14:40]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta utanrmn. (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (M):

Herra forseti. Umræða um þetta mál, ekki hvað síst af hálfu þeirra sem tala fyrir því, hefur að miklu leyti snúist um hugsanlegar undanþágur; væntingar þeirra, óraunhæfar væntingar, um að Ísland geti aflað sér einhverra undanþága óháð regluverki sambandsins og reynslu liðinna ára og áratuga. En til hvers? Hvers vegna að fara í ferli í von um að hugsanlega getum við fengið einhverjar undanþágur, kannski bara tímabundnar en einhverjar undanþágur, til að geta áfram stjórnað því sem við stjórnum nú þegar sjálf; til að geta áfram ráðið að einhverju leyti yfir auðlindum okkar sem við ráðum nú þegar sjálf. Til hvers að fara í það ferli til þess eins að fá að gefa eftir dómsvald, löggjafarvald og framkvæmdarvald eins og Evrópusambandið gerir kröfu um? Til að fá að gefa eftir yfirráð yfir eigin utanríkismálum eins og Evrópusambandið gerir kröfu um? Til þess að fá að segja upp öllum alþjóðasamningum Íslands sem henta ekki Evrópusambandinu eins og það gerir kröfu um? Til hvers að setja allt það sem við höfum í hættu? Menn segja: Við fáum þá sæti við borðið. Við fáum þingmenn á Evrópuþinginu. Ef Ísland gengi inn yrðu fulltrúar þar líklega um 750 með þeim fátæku löndum, eða jafnvel fleiri en það, sem nú falast eftir aðild. Ísland fengi þar í mesta lagi sex þingmenn, sex fulltrúa, á nánast tilgangslausu Evrópusambandsþinginu; þingi sem má ekki einu sinni leggja fram frumvörp, ber bara að taka við ákvörðunum og frumvörpum embættismannanna, ókjörnu embættismannanna í framkvæmdastjórninni, og afgreiða þau. Þingið getur talað aðeins um það, ekki of lengi, talað örlítið um það og kvartað en er bara afgreiðslustofnun. Fyrir sex sæti í þessari hátt í 800 manna afgreiðslustofnun eru menn tilbúnir að gefa eftir fullveldi landsins, sumir hverjir.

Talan sex er áhugaverð í þessu samhengi því hérna niðri í anddyri Alþingishússins er málverk af þjóðfundinum árið 1851 þar sem dönsk stjórnvöld buðu Íslendingum að verða hluti af Danmörku, fullgildur hluti af Danmörku, og fá fyrir vikið sex sæti á danska þinginu, töluvert áhrifameiri sæti en sex sæti í Evrópuþinginu. En við þessu tilboði Dana brugðust Íslendingar með orðum Jóns Sigurðssonar: „Vér mótmælum allir.“ Nú verðum við öll að mótmæla tilraunum þessarar vonlausu ríkisstjórnar til að véla Ísland inn í Evrópusambandið og afsala okkur fullum yfirráðum yfir dómsvaldi, framkvæmdarvaldi og löggjafarvaldi á Íslandi. Þegar á hólminn er komið snýst þetta fyrst og fremst um það hvort við höfum enn þá trú á fullveldinu; hvort við trúum því, eins og Íslendingar gerðu þegar þeir voru miklu fámennari og fátækari þjóð, að það sé okkur fyrir bestu að fá að ráða eigin málum og við séum fullfær um það. Á þetta var látið reyna og það skilaði árangri ár eftir ár, áratug eftir áratug. Svo sitjum við uppi með stjórnvöld sem í ljósi allrar þeirrar reynslu reyna að véla okkur inn í Evrópusambandið á hápunkti hnignunarskeiðs þess og endanlegum hápunkti er ekki náð þar enn. En endanlegum hápunkti í velferð Íslands og uppbyggingu þessa samfélags er ekki heldur náð svo framarlega sem við verjum fullveldi landsins.