þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Ég er hlynntur þessari þjóðaratkvæðagreiðslu, ég er hlynntur viðræðum og það er ekkert leyndarmál að ég er hlynntur aðild að Evrópusambandinu. Ég sé skýran kost við það að vera hluti af viðskiptabandalagi með líkt þenkjandi þjóðum sem við eigum í mjög nánu sambandi við. Það styrkir okkar efnahagslega fullveldi, svo að við tölum ekki um hvað það myndi gera fyrir íslensk heimili ef þau þyrftu ekki til lengdar að borga 8–9% vexti af fasteignalánum heldur gætu búið við evruvexti sem eru 3–4%. Þetta mál snýst um efnahagslegt fullveldi, hag heimilanna en síðast en ekki síst þá snýst þetta um lýðræði.
Forseti. Ég styð þetta mál.