157. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[15:04]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Síðustu vikur og mánuði hefur Sjálfstæðisflokkurinn rætt hér á Alþingi þau rök sem mæla gegn aðild Íslands að Evrópusambandinu. Staðan er þessi: Ríkisstjórnin leggur fram þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB-vegferð án breiðrar sáttar, án skýrs umboðs og án þess að ríkisstjórnarflokkarnir standi saman um markmiðið. Þetta minnir óþægilega á mistök Jóhönnu Sigurðardóttur og Össurar Skarphéðinssonar þegar Vinstri græn voru dregin inn í vegferð sem frá upphafi var dæmd til að mislukkast og því fór sem fór. Á sama tíma hækka vextir og verðbólga og heimili og fyrirtæki bíða eftir aðgerðum.

Sjálfstæðisflokkurinn hefur nálgast þessa umræðu af yfirvegun og lagt sig fram um að upplýsa þjóðina og það er einmitt upplýst ákvörðun okkar að standa utan Evrópusambandsins. Við viljum hafa völdin heima. Ákvarðanir um íslenska framtíð á áfram að taka á Íslandi. Við greiðum atkvæði gegn tillögunni.