157. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[15:05]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Í hvaða vegferð erum við að fara og af hverju? Hæstv. forsætisráðherra sagði fyrir kosningar að það yrði ekki farið í Evrópusambandsvegferðina nema það lægi fyrir meiri hluti á þingi, það væri krafa frá aðilum vinnumarkaðarins og atvinnulífinu og ríkisstjórnin stæði einhuga á bak við það. Því er ekkert af þessum þremur kröfum forsætisráðherra í kosningabaráttu uppfyllt. Það er aðeins einn flokkur sem hefur krafist þess að í þessa vegferð verði farið. Undirbúningurinn hefur verið knappur. Hann er ekki nægur að okkar mati. Við í Framsókn styðjum þjóðaratkvæðagreiðslur og munum ekki leggjast gegn því að í þessa vegferð verði farið. Við erum hins vegar eftir margra ára yfirvegun á þeirri skoðun að Íslandi sé betur borgið utan Evrópusambandsins en innan með EES-samninginn og við munum því (Forseti hringir.) halda okkur við það. Ég mun segja nei í þessari þjóðaratkvæðagreiðslu þegar þar að kemur en skýri betur mál mitt hér í dag í atkvæðagreiðslunni.