157. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[15:07]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Ég styð þessa tillögu, styð aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið. Mig langar til að geta stutt samning sem kæmi út úr þeim aðildarviðræðum. Ég er bjartsýn á að markmið okkar geti náðst. Ég hef skilning á því að alls konar hughrif vakna hjá fólki þegar rætt er um Evrópusambandsaðild Íslands. Það er rétt að hluti þjóðarinnar er efins um það hvort það sé farsælt skref en það er á sama tíma líka hluti íslensku þjóðarinnar sem er forvitinn um hvaða áhrif hún gæti haft á þeirra daglega líf, hvernig það væri ef þau byggju í sama hagkerfi og stórfyrirtæki hér á landi. Þetta fólk vill fá að láta á það reyna að Ísland fari í aðildarviðræður og geri ýtrustu kröfur fyrir íslenska hagsmuni. Svo eru það önnur öfl sem vilja halda þessum dyrum lokuðum.

Forseti. Það vekur hjá mér mikið þjóðarstolt að greiða atkvæði með þessari tillögu í dag um að taka þetta skref, opna þessar dyr og taka slaginn fyrir Ísland því við höfum ekki neinu á því að tapa.