157. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[15:08]
Horfa

Ásthildur Lóa Þórsdóttir (Flf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Það hefur ekki farið fram hjá neinum að Flokkur fólksins er ekki fylgjandi aðild að Evrópusambandinu. Flokkurinn hefur hins vegar alltaf verið fylgjandi því að þjóðin sé spurð álits á málum sem hafa áhrif á framtíðina til langs tíma. Við fögnum því þjóðaratkvæðagreiðslu þar sem þjóðin er spurð hvort hefja eigi á ný viðræður við Evrópusambandið um aðild Íslands að sambandinu. Hér er ekki verið að biðja þjóðina um að taka afstöðu til þess hvort Ísland skuli ganga í Evrópusambandið. Ríkisstjórnin hefur hins vegar boðað að samþykki þjóðin að viðræður hefjist á ný verði hugsanlegur samningur að loknum þeim viðræðum einnig borinn undir þjóðina. Þjóðin mun því alltaf hafa lokaorðið í þessu stóra og mikilvæga máli. Flokkur fólksins mun því vera á grænu í þessari atkvæðagreiðslu.