þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Það þarf engum að koma á óvart að ég og þingflokkur Viðreisnar styðjum þetta mál heils hugar og gerum það með margvíslegum rökum. Við föllumst ekki á að það sé einhver vafi á því að það sé meiri hluti í þinginu fyrir þessu máli. Það er nefnilega oft verið að rugla saman tvennu. Það er meiri hluti og samþykki á milli stjórnarflokkanna og það er í stjórnarsáttmála að þessi vegferð, að þjóðin skeri úr þessu deilumáli sem staðið hefur yfir í áratugi, sé leiðin sem farið verði í. Um það erum við sammála. Það er nefnilega ekki rétt sem margir halda fram, að nú sé ekki rétti tíminn eða nú séu ekki réttu aðstæðurnar. Þetta hefur alltaf snúist um það að sumir vilja ekki gera þetta en aðrir vilja gera þetta. Við leysum úr því með því að kalla þjóðina að borðinu. Við eigum öll að geta sameinast um það. Ég styð þetta mál heils hugar.