þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Við greiðum hér atkvæði í dag í máli sem ég held að sé með því stærra, ef ekki það allra stærsta, sem við höfum tekist á um í þessum sal. Það er alveg ljóst og við höfum verið mjög skýr í Framsókn um hver vilji flokksins er þegar kemur að aðild að Evrópusambandinu. Það er líka skýrt að Framsókn er hlynnt því að þjóðin fái að segja sitt í þessari atkvæðagreiðslu. En höfum það í huga að það er líka mjög mikilvægt að virða niðurstöðu þjóðarinnar og virða það þegar og ef þjóðin segir nei. Ég mun segja nei í haust, alveg klárlega, því að ég sé ekki þá gullnu skóga sem sumir sjá handan Atlantsála.