þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Ég mun segja já við þessari þingsályktunartillögu. Eftir að hafa hlustað á umræður hér í þingsal þá verð ég nú eiginlega bara að þakka stjórnarandstöðunni og þá sérstaklega Miðflokknum fyrir það að ég er alveg ákveðinn í að segja já 29. ágúst. [Hlátur í þingsal.] Ég vil fá að sjá hvort þessi dómsdagsspá muni rætast. Ég vil fá að sjá hvað kemur upp úr þessum pakka. Kemur það sem er búið að vera að spá í þessum í þingsal, einhver hrikaleg hörmung? Ég segi það bara eins og er að það hvað ég geri eftir samningaviðræðurnar er á huldu. Ekki konunni minni, heldur á huldu. En ég óttast ekki þjóðina. Ég tel að það sé löngu tímabært að við klárum viðræður við Evrópusambandið og sjáum nákvæmlega hvað við fáum. Síðan látum við þjóðina bara segja já eða nei. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)