þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Það er gleðidagur hér í dag. Við erum að taka stórt skref í þágu almannahagsmuna, skref sem felur í sér að þjóðin mun fá að taka afstöðu til þess að láta reyna á það hvaða tækifæri felast í Evrópusambandsaðild. Við í Viðreisn höfum alltaf verið skýr með það að þjóðin ræður för og ég trúi því að þjóðin muni segja já í lok ágúst, muni segja já, muni velja að opna dyr frekar en að loka þeim. Og ég trúi því líka að þegar það já kemur munum við öll hér inni sameinast um að ná sem bestum samningi fyrir hönd þjóðarinnar. Það er raunverulega verkefnið sem við eigum að sameinast um. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)