157. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[15:16]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Enginn af fyrirvörum hæstv. forsætisráðherra eða hæstv. utanríkisráðherra frá því fyrir kosningar er efndur, enginn. Miðflokkurinn óttast ekki niðurstöðu þjóðarinnar. Við tókum þessa umræðu til að draga fram upplýsingar sem meiri hlutinn var að reyna að halda frá okkur, halda frá bæði þingi og þjóð. Síðast í gærkvöldi náðist áfangasigur í því. Annar áfangasigurinn náðist þegar spurningunni var breytt. Svona hefur málið verið í hnotskurn. Það hefur allt verið gert af hálfu meiri hlutans til að neita að veita upplýsingar eða í það minnsta reyna að draga það eins lengi og hægt er. Það er því ekki hægt, frú forseti, að styðja þetta mál.