157. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[15:17]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Meiri hluti þingheims sem kosinn er af þjóðinni er andvígur aðild að ESB. Hér horfum við upp á, með leyfi forseta, „klofna, ráðvillta og óbilgjarna ríkisstjórn“, svo ég fái orð hæstv. utanríkisráðherra að láni frá því að hún greiddi hér atkvæði 2009 um viðræður við ESB. Í hópi stjórnarliða og hæstv. ráðherra eru hv. þingmenn sem lýsa yfir andstöðu við aðild að ESB um leið og ríkisstjórnin biður um umboð þjóðarinnar til viðræðna við ESB. Sú einstaka staða sem ríkisstjórnin hreykir sér af minnir auðvitað bara á Jóhönnustjórnina, síðustu vinstri stjórn sem reyndist ófær um að gæta hagsmuna Íslands gagnvart ESB og viðræðurnar runnu út í sandinn. Tíma, orku og verulegum fjármunum var varið í bjölluat í Brussel og á meðan sat endurreisn Íslands á hakanum. Aftur hefur vinstri stjórn gefist upp á verkefninu, alið á ótta og sundrungu í stað þess að einbeita sér að brýnum verkefnum hér innan lands. Klofin, ráðvillt og óbilgjörn ríkisstjórn.