þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Þá er komið að því að ríkisstjórn Íslands ætlar að svíkja síðustu kosningaloforðin sem voru eftir. Þau lofuðu að hækka ekki skatta, þau lofuðu að draga úr útgjöldum og þau lofuðu að fara ekki með þjóðina í Evrópusambandið. Strax eftir kosningar var þetta sett á dagskrá. En hvað gerðist fyrir kosningar? Enginn flokkanna ætlaði að hafa þetta á dagskrá. Þjóðin kaus þessa ríkisstjórn. Þjóðin kaus gegn Evrópusambandinu. Og hvað þurfti að gera? Það þurfti að setja af stað nýtt leikrit vegna þess að þjóðin vildi þetta ekki, leikritið um pakkann til að kíkja í. Við erum búin að standa hérna og benda á að það er enginn pakki til að kíkja í. Evrópusambandið er Evrópusambandið. Þeir sem kjósa já í ágúst vilja fara inn í Evrópusambandið. Þeir sem kjósa nei vilja ekki fara inn í Evrópusambandið.