þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Ég styð ekki þessa vegferð. Ég trúi því ekki að hagsmunum Íslands sé betur borgið innan Evrópusambandsins. Ætli það sé tilviljun ein að ríkustu þjóðir Evrópu hafa kosið að vera fyrir utan Evrópusambandið, Ísland, Noregur og Sviss? Sú tillaga sem við greiðum hér atkvæði um kemur illa unnin inn í þingið. Það hefur tekist að betrumbæta hana lítillega í meðförum þingsins en enn eru svör ráðherra þessarar ríkisstjórnar óljós með öllu. Það er enn þá óljóst hvað það þýðir nákvæmlega að segja já. Þýðir það að samningur verði kláraður, eins og hæstv. utanríkisráðherra hefur sagt? Eða þýðir það það sem hæstv. forsætisráðherra hefur sagt: Mögulega verður hann kláraður og þá mögulega lagður í aðra þjóðaratkvæðagreiðslu? En þegar hæstv. forsætisráðherra er spurður: En ef fólk segi nú nei 29. ágúst? þá hefur ríkisstjórnin ekkert velt því fyrir sér hvað það þýðir.