157. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[15:23]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Þetta er allt saman áhugavert. Þetta ferli hefur allt saman verið í skötulíki, málið ekki á þingmálaskrá, ekki sett í samráðsgátt, keyrt með afli í gegnum þingnefnd og á nú að keyra af afli í gegnum sali Alþingis. Vinnubrögðin eru ótraustvekjandi. Það hefur verið byggt á hræðsluáróðri, útúrsnúningum og engum spurningum svarað þó svo að þingmenn, í það minnsta hér í minni hlutanum, hafi reynt ítrekað að fá svör frá ráðamönnum. Það er ekkert ríki sem sækir um aðild að Evrópusambandinu sem ætlar sér ekki að ganga þar inn. Við skulum bara hafa það á tæru. Sú sem hér stendur hefur engan áhuga á því að hefja aðlögun að Evrópusambandinu og sú sem hér stendur hefur engan áhuga á því að ganga í Evrópusambandið. Ég tel hagsmunum Íslands betur borgið utan þess og að halda áfram í EES-samstarfinu. Ég get þess vegna ekki stutt þetta mál.