157. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[15:25]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Við greiðum nú atkvæði í einu stærsta máli sem komið hefur inn á þing hina síðari tíma. Við í Framsókn styðjum heils hugar þjóðaratkvæðagreiðslur. Hins vegar er það þannig að það hefur verulega skort á undirbúning málsins hér og upplýsingar til þjóðarinnar og má segja að þar hafi ríkisstjórnin brugðist þjóðinni. Þetta snýr að því hvernig við viljum að ákvarðanir um framtíð þjóðarinnar séu teknar. Hvar liggja rauðu strikin, línurnar, samningsmarkmiðin? Þetta liggur ekki fyrir núna þegar við erum að fara að greiða atkvæði um þetta í lok ágúst. Hvað þýðir það fyrir hagsmuni Íslands ef þjóðin kýs já? Hvað þýðir það fyrir hagsmuni Íslands ef þjóðin segir nei? Þetta liggur ekki skýrt fyrir.

Ég tel að það sé afar mikilvægt og við í Framsókn trúum því að það sé mikilvægara og betra fyrir hagsmuni Íslands að standa utan ESB en innan EES-samstarfsins. Við eigum að byggja áfram á þeim styrkleikum sem hafa gert Ísland að einu farsælasta samfélagi heims. En höfum það í huga að þessi vegferð (Forseti hringir.) er á ábyrgð ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur.