þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Þessi atkvæðagreiðsla snýst um trú á varanlegar undanþágur frá nýtingu náttúruauðlinda sem er stóra málið fyrir okkur Íslendinga. Við skulum taka dæmi sem fólk skilur. Írar töldu sig vera með samning við ESB, 50 ára gamalt ákvæði, svokallað Haag-ákvæði, sem var síðan fellt formlega inn í lagaramma sameiginlegu sjávarútvegsstefnunnar árið 1983. Ákvæðinu var ætlað að vernda hagsmuni írskra fiskimanna. Það tryggði Írum aukna hlutdeild í kvóta tiltekinna fiskstofna ef heildarhámark færi niður fyrir ákveðin lágmarksviðmið. Í fyrsta skipti síðan ákvæðið var samþykkt árið 1976 mynduðu stærri aðildarríki undir forystu Frakklands, Þýskalands, Hollands og Póllands blokk til að koma í veg fyrir virkjun þess. Þetta hefur verið pólitískur stormur á írska þinginu. Timmy Dooley, sjávarútvegsráðherra Írlands, kallaði höfnunina opinberlega alvarleg svik, „act of betrayal“, af hálfu samstarfsríkja Írlands í ESB. Írland tók það fáheyrða skref að kjósa gegn heildarreglugerð ESB um fiskveiðiheimildir til að sýna mótmæli sín en reglugerðin var samt samþykkt með auknum meiri hluta. (Forseti hringir.)
Hverjum dettur í hug að Írum hugnist það að veita Íslendingum einhverjar varanlegar undanþágur frá sjávarútvegsstefnu Evrópusambandsins?