157. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[15:28]
Horfa

Snorri Másson (M) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Miðflokkurinn hefur á undanförnum dögum gert hvað hann getur til að bæta þetta ólánsmál. Hann getur þó ekki stutt málið enda er það gallað í eðli sínu. Ef maður horfir á málið þá er augljóst að ríkisstjórnin er klofin í afstöðu sinni til aðildar að Evrópusambandinu. Við þær kringumstæður er eina ráðið að flytja þennan ágreining sem ríkisstjórnin getur ekki leyst sín á milli án þess að liðast í sundur, býst ég við, yfir á íslenskan almenning. Þegar það er gert þá treysti ég því að íslenskur almenningur muni komast að réttri niðurstöðu og sjái í gegnum þær brellur sem reynt er að beita. Í því sambandi tel ég að framtíð Íslendinga sé afar björt og að tækifæri okkar séu sannarlega ómæld en þeim fjölgar ekki við inngöngu í Evrópusambandið nema síður sé.