þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Fyrir skömmu sagði hæstv. utanríkisráðherra í viðtali að það myndi hafa afdrifaríkar afleiðingar fyrir þjóðina ef nei verður niðurstaðan í sumar. Afdrifaríkar afleiðingar — þetta er gamalkunnugt stef, fræjum óttans er sáð. Í Icesave var þjóðinni sagt að Ísland yrði einangrað, Kúba norðursins, ef við samþykktum ekki að taka á okkur skuldir sem við bárum enga ábyrgð á. En við stóðum á rétti okkar og sögðum nei og unnum málið fyrir EFTA-dómstólnum. Það var mögulegt. Það var mögulegt vegna þess að Ísland hafði fullt vald yfir eigin málum. Innan Evrópusambandsins hefðum við ekki haft sama svigrúm til að verja hagsmuni þjóðarinnar, líkt og reynsla Íra og Grikkja sýnir. Fullveldi skiptir máli þegar mest á reynir. Segjum nei í sumar.