þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Þjóðaratkvæðagreiðslan sem er hér til umfjöllunar er auðvitað atkvæðagreiðsla um aðild. Þeir sem segja já eru að staðfesta ákvörðun Alþingis árið 2009 um að sækja um aðild að Evrópusambandinu. Þeir sem segja nei eru að hafna þeirri ákvörðun. Þetta þarf að liggja ljóst fyrir öllum. Allt tal um að það þurfi að kíkja í pakkann er til þess að villa um fyrir kjósendum því að með því að sækja um aðild er verið að veita pakkanum viðtöku og það eru engin leyndarmál í honum. Í honum er ítarleg forskrift að því hverju Ísland þurfi að breyta til að verða aðili. Viðræður um aðild að Evrópusambandinu eru viðræður um aðlögun. Allt annað er útúrsnúningur. En við erum í dag vel sett. Við höfum varnarsamning við Bandaríkin, aðild að Evrópumarkaði og yfirráð yfir auðlindum okkar. Höldum okkur þar.