þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Það er loksins komið að þessari stund, komið að því að greiða atkvæði um þetta stóra mál eftir lengri umræðu en átti sér stað árið 2009 um þingsályktunartillögu um að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið. Hér erum við aftur á móti að greiða atkvæði um það að setja málið í hendur almennings. Við erum að greiða atkvæði um þjóðaratkvæðagreiðslu og í raun þá atkvæðagreiðslu sem ríkisstjórn hv. þm. Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar sagðist í stjórnarsáttmála ætla að halda, sem Sjálfstæðisflokkurinn hafði lofað. Hér erum við að standa við það. Við ætlum að leiða fram þjóðarviljann í þessu mikilvæga máli. Ég styð það heils hugar.
Virðulegi forseti. Þetta er góður dagur.