157. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[15:33]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Frá upphafi hefur þetta mál verið rekið af hæstv. ráðherrum og meiri hlutanum hér á grundvelli umbúðamennsku og menn hafa viljað forðast fyrir alla muni að ræða innihald málsins. Það hefur ekki tekist að skýra, þrátt fyrir áeggjan landskjörstjórnar, hvað gerist ef kjósendur í þjóðaratkvæðagreiðslu segja nei og hvað gerist ef kjósendur segja já. Málið er þess vegna ótækt og ekki hægt að styðja það. En mér þykir líka lítið leggjast fyrir Alþingi Íslendinga ef það ætlar eitt þjóðþinga og raunar eitt stjórnvalda í Evrópu að reyna að telja almenningi trú um það, þjóðinni, að það að sækja um aðild að Evrópusambandinu snúist um eitthvað allt annað en vilja til að ganga í Evrópusambandið, og þið megið vita það, hv. þingmenn, að hæstv. utanríkisráðherra hefur ekki talað á þann hátt í Brussel.