157. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[15:35]
Horfa

Dagur B. Eggertsson (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Ég fæddist ekki Evrópusinni en sannfærðist ungur um gildi þess að eiga í samstarfi við aðrar þjóðir á grundvelli lýðræðis, mannréttinda og þeirra gilda sem samfélag okkar byggir á. Núna er ég sannfærður um það að upptaka nýs gjaldmiðils sé stærsta kjaramálið sem íslensk heimili standa frammi fyrir. 100 milljarðar í húsnæðislánum á hverju ári. Samkeppnishæfni fyrirtækjanna er líka þannig að lítil og meðalstór fyrirtæki hafa gríðarlega hagsmuni af því að geta keppt jafnfætis við þau stóru fyrirtæki sem geta tekið lán í evrum. Og heimurinn er líka breyttur. Það eru svo ríkir öryggishagsmunir fyrir því í heimi tollastríða að standa með öðrum sem hugsa eins og trúa á viðskiptafrelsi. Ég ætla að segja já. Ég veit að það eru margir sem eru efins en ég minni þá á laglínuna: Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski. Látum á þetta reyna, höldum dyrunum opnum.