157. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[15:36]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Hér er vissulega um mikilvæga atkvæðagreiðslu að ræða en ekki jafn mikilvæga og þjóðaratkvæðagreiðslan verður líklega í lok sumars. Það skiptir því öllu máli að fólkið í landinu fái í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar réttar upplýsingar. Og það er því miður fyrirsláttur, sem er allt of oft haldið fram af hæstv. ríkisstjórn, að allar upplýsingar komi fyrst í ljós við samningaborðið í Brussel. Það er ekki rétt. Langstærsti hluti staðreynda og upplýsinga liggur nú þegar fyrir; um Evrópuréttinn, um valdastrúktúr ESB gagnvart smáþjóð eins og okkar, um efnahagsástand álfunnar o.s.frv. Þetta liggur fyrir. Það er ekki efi í mínu hjarta, frú forseti, að ef þjóðin fær réttar upplýsingar um þessar staðreyndir, algjörlega burt séð frá því hvað mun koma fram við þessi samningaborð, þá mun þjóðin hafna því að (Forseti hringir.) eyða orku og fjármunum í þá vegferð næstu misseri eða ár, mun hafna því. Ef þjóðin fær réttar upplýsingar um staðreyndir um ESB þá mun hún segja nei takk.