þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Forseti. Nú reynir svolítið á hvort við höfum kjark til að horfa fram á veginn og treysta þjóðinni okkar til að taka sjálf ákvörðun um framtíð landsins okkar. Hér er um skýrt stefnumál að ræða sem varðar almannahag. Ég trúi því að Ísland eigi ekki að loka dyrum heldur að opna þær, afla upplýsinga og skoða af alvöru hvaða valkostir og hvaða tækifæri standa okkur til boða. Við erum lítil þjóð en við höfum ekki náð árangri með því að hugsa smátt, þvert á móti að hugsa stórt. Við gerðum það þegar við gerðumst aðilar að NATO, EFTA og EES-samningnum, allt farsæl skref í þágu þjóðar. Við heyrum í dag sömu úrtöluraddirnar og við heyrðum þá gegn öllum þessum mikilvægu og jákvæðu skrefum fyrir þjóðina. Við höfum alltaf sótt fram þegar við höfum haft hugrekki til að taka stórar og framsýnar ákvarðanir, sérstaklega þegar áskoranirnar eru miklar í heimsmálum. Þess vegna greiði ég atkvæði með því að þjóðin sjálf fái orðið í þjóðaratkvæðagreiðslu sem snýst ekki um inngöngu í ESB, snýst ekki um aðild að ESB, snýst ekki um aðlögun að ESB, (Forseti hringir.) heldur snýst um það að þjóðin fái að vita meira, hún fái upplýsingar og fái að sjá samning. Þetta er dagur þjóðarinnar. Ég segi já.