þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Hér höfum við rætt eitt stærsta utanríkismál sem hefur komið á dagskrá þingsins lengi og er um leið mál sem getur haft mikil áhrif á framtíð Íslands. Ég verð að segja að ég er djúpur alþjóðasinni. Ég trúi því að með alþjóðasamvinnu, sama hvort það er við Evrópu, á norðurslóðum eða við Grænland, þá stækkum við og eflumst. Ég er hins vegar líka djúpur fullveldissinni og ber mikla virðingu fyrir þeim baráttum sem voru háðar fyrir auðlindum okkar og mér þykir vænt um þá baráttu. Ég hef trú á sérstöðu okkar í þessum heimi þar sem valdapólar rísa og hníga. Ég hef trú á að sú sérstaða, staðsetning okkar á norðurslóðum, geti leitt af sér spennandi tækifæri, alls kyns tækifæri til þess að efla Ísland. Ég hef trú á lýðveldinu Íslandi. Ég mun ekki gera athugasemdir við þessa þjóðaratkvæðagreiðslu (Forseti hringir.) en ég vona að við sækjum fram í samvinnu — við Evrópu er jákvætt en líka breiðar. Það er mín sýn.