þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Við eigum að leyfa okkur að horfa á þetta mál út frá okkar stöðu og okkar stað, út frá því sem er best fyrir Ísland. Hvort sem við erum í stjórn eða stjórnarandstöðu, hvort sem við erum í meiri hluta eða minni hluta, hljótum við öll að geta verið sammála um það að staða íslensku þjóðarinnar, þegar horft er á stóru myndina, er með því besta sem gerist. Þetta sýnir allur alþjóðlegur samanburður. Viðskiptahagsmunir okkar eru tryggðir í gegnum EES-samninginn og aðra fríverslunarsamninga. Varnar- og öryggishagsmunir okkar eru tryggðir í gegnum varnarsamning okkar við Bandaríkjamenn og aðild okkar að NATO. Hvaðan kemur þessi leiðangur? Er einhver knýjandi nauðsyn eða almennt ákall í þjóðfélaginu um að Ísland gerist aðili að Evrópusambandinu? Er meirihlutastuðningur meðal þjóðarinnar við aðild? Nei. Er ákall um aðild frá aðilum vinnumarkaðarins? Nei. Eru allir flokkarnir í ríkisstjórn Íslands sammála um aðild? Nei.
Frú forseti. Þennan leiðangur vantar erindi og tilgang. Ég treysti þjóðinni í þessu máli og tel að hún muni horfa til þess að segja nei þann 29. ágúst og segja ríkisstjórninni þar með að við ætlum ekki að eyða orku okkar og kröftum í leiðangur án erindis, heldur að við eigum að einbeita okkur að þeim verkefnum sem skipta máli fyrir Ísland, verkefnunum sem þessi ríkisstjórn var kosin til að gera og hefur enn sem komið er skilað auðu í. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)