þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Samfylkingin styður þetta mál því að við treystum þjóðinni. Samfylkingin styður þetta mál því að við teljum rétt að kanna þau tækifæri sem felast í aðild að Evrópusambandinu, í bættri samkeppni og upptöku á stærri og öflugri gjaldmiðli. Samfylkingin styður þetta mál því að á óvissutímum í alþjóðamálum teljum við ábyrgt að fjölga möguleikum og auka samstarf við líkt þenkjandi þjóðir. En síðast en ekki síst þá styðjum við þetta mál því að við teljum rétt að þjóðin eigi fyrsta og síðasta orðið þegar kemur að svo stóru hagsmunamáli fyrir Ísland.