þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Það er áhugavert að fylgjast með umræðunni hér, auðvitað bara eins og síðustu daga. Það er alltaf áhugavert að fylgjast með fólki sem reynir að telja landsmönnum trú um að það skorti eitthvert erindi eða innihald í þetta þingmál, jafnvel að ekkert sé um að semja. Hvernig geta menn haldið því fram þegar það er einhver aðili þarna úti sem segir að það sé eitt og annað að semja um — að hér séu þá innan lands einhverjir aðilar að segja: Nei, þessi aðili sem við ætlum að semja við veit ekkert um hvað hann er að tala. Þetta er auðvitað málflutningur sem gengur ekki upp. Þeir sem velta fyrir sér innihaldi ættu að velta því fyrir sér hvernig stendur á því að það eru alltaf hærri vextir og hærri verðbólga til áratuga á Íslandi en í löndum Evrópu (Gripið fram í.) og við getum líka tekið Sviss og Noreg sem dæmi þegar við tölum um langtímaleitni í þessu. Íslenski örgjaldmiðillinn er gargandi röksemd fyrir því að það er gáfulegt að segja já hér í dag og það er gáfulegt að segja já í ágúst.