157. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[15:45]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Stjórnmálaelítan var hér að tala og var að segja almenningi hvað væri gáfulegt. Hér er ríkisstjórn í landinu sem lofaði sleggju og plani, að taka niður vexti og verðbólgu. Hún gerði það ekki. Hún skattpíndi lítil og meðalstór fyrirtæki en nú lofar hún því að ef við förum í Evrópusambandið þá muni þetta allt saman lagast.

Virðulegi forseti. Þetta eru falsfréttir. Það vita það allir sem vilja skoða að það erum bara við sem getum lækkað vexti og verðbólgu og það hefur ekkert með það að ganga inn í Evrópusambandið.

Virðulegi forseti. Það sem kemur í veg fyrir upplýsingaöflunina er hæstv. ríkisstjórn því að hún heldur ekki réttum upplýsingum að almenningi. Það er okkar verkefni í sumar að sjá til þess að staðreyndirnar komi fram.

Virðulegur forseti. Við erum afkomendur (Forseti hringir.) stórhuga fólks sem horfði til framtíðar og sá til þess að við tókum völdin í okkar eigin hendur. Við skulum þakka það og við skulum ekki klúðra því sem þau börðust fyrir og höfðu sigur í.