þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Hér erum við ekki að greiða atkvæði um það að fara í aðildarviðræður. Það vald er hjá öðrum en okkur sem erum hér inni og við erum stolt af því að fela þjóðinni þetta vald. Ég er mjög fegin að norska þjóðþingið, Stortinget, kom ekki í veg fyrir það að Norðmenn gátu í tvígang greitt atkvæði um aðildarsamning við Evrópusambandið (Gripið fram í: Höfnuðu tvisvar. )og sögðu: Nei. Það kemur til greina að það kunni að vera niðurstaðan en þá erum við búin að færa þjóðinni það vald. Fyrst við erum að tala um Noreg þá eru það svo sannarlega ekki skoðanasystkini Sjálfstæðisflokksins sem standa í vegi fyrir því að standa með frjálsum viðskiptum því ég stend með frjálsum viðskiptum sem eru á undanhaldi í heiminum. Þessi þjóð þarf að taka ákvörðun um það hvort hún vilji halda áfram í EES eða ganga í aðildarviðræður, þar sem við erum nú þegar með annan fótinn í ESB, og taka upplýsta ákvörðun. Um það greiðum við atkvæði hér.