157. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[15:48]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Ég velti því hreinlega fyrir mér af hverju við erum komin í þá stöðu að vera að greiða hér atkvæði um þetta mál eins og það liggur fyrir þegar við höfum dæmi fyrir framan okkur. Við þurfum ekki að horfa lengra en til áranna 2009–2013. Það liggur alveg fyrir. Ég vil líka minna á orð hæstv. forsætisráðherra sem voru virkilega spök og voru rædd hér í aðdraganda kosninganna þegar hún benti á að þessi vegferð okkar núna myndi kljúfa þjóðina. Það er hárrétt hjá forsætisráðherra. Það er ekkert nýtt sem hefur komið fram, nákvæmlega ekki neitt í þessu máli nema mögulega það að íslenska þjóðin stendur mun styrkari fótum en hún gerði á þeim tíma. Það er ekkert sem kallar á að við séum að leggja í þessa vegferð. Það er enginn að biðja um þetta. — Jú, reyndar. Viðreisn er að hvísla þessu.