þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Það er alveg sama hversu oft stjórnarþingmenn ætla að hafa hér yfir litlu stílana sína um það að þetta mál lúti að vilja þjóðarinnar og að fela þjóðinni eitthvert frelsi til að ákveða mikilvæga hluti í stjórnskipan Íslands. Þetta mál lýtur ekkert að vilja þjóðarinnar. Það hafðist þó upp úr krafsinu hér í umræðum um þetta mál að toga það upp úr hæstv. ráðherrum, þeir viðurkenna það, að það verður ekki einu sinni þannig að samningur sem þessu fólki, þessum háu herrum, hugnast ekki verði lagður fyrir þjóðina. Þjóðin fær ekki að sjá hvað sem kemur út úr þessum viðræðum. Þetta þingmál snýst um það eitt að breiða yfir það króníska verkstol sem hrjáir þessa ríkisstjórn sem kemur sér ekki í það verk að bæta fyrir það mikla böl sem hún þreytist ekki á að þylja upp að hvíli hér yfir þjóðinni. Allt það böl og óáran sem þessi ríkisstjórn telur að þjóðin búi við, það er í verkahring þessarar ríkisstjórnar að bæta það. En hún ætlar ekki að gera það heldur að þvæla þjóðinni og varpa ábyrgðinni á almenna kjósendur til að hylma yfir þetta verkstol sem verður viðvarandi næstu tvö árin.