157. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[15:50]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Það er eitt óumdeilt varðandi þetta mál. Við erum að fara að kjósa um viðræður við ESB, viðræður um að gefa frá okkur mikil völd sem við höfum barist í aldir fyrir að fá í hendurnar, til að ráða sjálf málefnum Íslands. Með leyfi forseta:

„Það hefur aldrei gerst hjá Evrópusambandinu að menn þurfi ekki að gefa eftir fullveldi að einhverju leyti þegar menn ganga í sambandið. Bara það eitt að segja að við ætlum að sækja um aðild að Evrópusambandinu þýðir að menn eru reiðubúnir til þess að afsala sér að einhverju leyti fullveldi.“

Þessi tilvitnun er í hæstv. utanríkisráðherra, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, þegar hún greiddi atkvæði árið 2009 um viðræður Íslands við ESB. Ríkisstjórnin er reiðubúin að setja verðmiða á fullveldi Íslands en hún ætlar að selja það dýrt. Hversu margra þúsunda milljarða evra virði eru miðin okkar og orkan, evrur sem við fengjum náðarsamlegast að nota í fjarlægri framtíð?