þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Það er enginn að kalla á þessa vegferð nema Viðreisn. Ekki var það Samfylkingin fyrir kosningar og ekki var það Flokkur fólksins. Málið snýst einfaldlega um sérhagsmuni eins stjórnmálaflokks og í raun er tilvist hans undir, enda var hann stofnaður í kringum þetta eina mál. Hvert er erindi slíks flokks ef nei verður ofan á í lok sumars? Við skulum heldur ekki gleyma því að ekkert umsóknarríki hefur fengið varanlegar undanþágur frá stofnsamningi ESB. Ekkert ríki hefur fengið varanlegar undanþágur. Ekkert. Ísland er ein ríkasta þjóð heims með auðlindir sem margir girnast og að sjálfsögðu vilja önnur ríki fá hlutdeild í þeim auðlindum. Það er ekki tilviljun að skuldug Evrópa vilji fá okkur í sinn faðm. Það er ekki tilviljun. Ég vona að fólk hugsi um þetta þegar það kýs í lok sumars og kjósi nei.