157. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[15:55]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Hv. þingmönnum meiri hlutans verður tíðrætt um traust til þjóðarinnar. En meiri hlutinn hér treystir ekki þjóðinni. Hann treystir henni ekki fyrir upplýsingum, hann treystir henni ekki fyrir staðreyndum en umfram allt blasir við að þjóðinni er ekki treyst til að stjórna sér sjálf. Hér höfum við fengið að heyra það í ræðum að það væri affarasælla fyrir Íslendinga að vera stjórnað af ókjörnum erlendum embættismönnum en að þjóðin fái áfram að ráða, og ekki bara í einni þjóðaratkvæðagreiðslu um óljóst mál heldur að þjóðin fái áfram að ráða framtíð síns lands. Fyrir því treystir meiri hlutinn ekki íslensku þjóðinni og reynir að útskýra að það sé henni fyrir bestu að gefa eftir það vald.