þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Undanfarna mánuði hefur ríkisstjórnin og fylgitungl hennar talað mikið um að nú sé lag til að kanna hvað er í boði og að kíkja í pakkann. Þetta er útúrsnúningur. Frumgögn Evrópusambandsins eru alveg skýr og þau sýna að aðildarviðræður snúast ekki um að semja upp á nýtt um grunnskipulag Evrópusambandsins. Samningsramminn segir skýrt að aðild feli í sér viðurkenningu á réttindum og skuldbindingum sem fylgja kerfi Evrópusambandsins og stofnanaramma þess. Við munum þar með missa forræði yfir fiskimiðum, orkunni, landbúnaðinum og þeim verðmætum sem líf okkar hér hefur byggst á í gegnum aldirnar. Ríkisstjórnin leggur af stað í þessa háskaför vegna þess að hún er löngu búin að gefast upp á því verkefni sem hún tók að sér í kosningum í nóvember 2024. Nú sjáum við, heimilin og fyrirtækin, fram á að vextir og verðbólga hækki. (Forseti hringir.) Þau bíða eftir aðgerðum. (Forseti hringir.) Hvað höfum við fengið í þessu sleggjuplani í ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur annað en bensínafslátt, Evrópusambandið og lokun á hleðslugatinu? Það er nú öll framtíðarsýn þessarar ríkisstjórnar.