157. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[16:00]
Horfa

Pawel Bartoszek (V):

Virðulegi forseti. Það er ekkert sem hefur komið fram sem réttlætir að þessari atkvæðagreiðslu sé frestað. Þessi dagsetning, 29. ágúst, gengur upp samkvæmt landskjörstjórn, það liggur fyrir staðfest í umsögn hennar. Landskjörstjórn treystir sér bæði til að framkvæma atkvæðagreiðsluna og til að standa fyrir hlutlausri kynningu. Niðurstaða atkvæðagreiðslunnar mun hafa mikil áhrif á næsta þing. Þar sem tillöguflytjendur hafa ekki getað sagt að þeir styðji atkvæðagreiðsluna ef þessi breyting verður samþykkt þá sé ég ekki að hún sé sett fram til að bæta málið heldur til að hægja á og stytta þann tíma sem núverandi ríkisstjórn hefði til að komast áfram í hugsanlegum viðræðum við Evrópusambandið og koma heim með samning fyrir þjóðina til samþykktar eða synjunar. Ég segi því nei, frú forseti.