157. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[16:01]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Við greiðum atkvæði með breytingartillögu um að seinka þjóðaratkvæðagreiðslunni. Þessi tillaga snýst um að upplýsa þjóðina á besta mögulegan máta. Hún snýst um rétt kjósenda til að fá tíma, upplýsingar og raunveruleg tækifæri til að taka afstöðu í einu stærsta hagsmunamáli íslensku þjóðarinnar. Bæði landskjörstjórn og Feneyjanefndin hafa viðrað áhyggjur af undirbúningi, skýrleika og upplýsingagjöf til kjósenda. Samt hefur ríkisstjórnin ekki fært nein sannfærandi rök fyrir þessum asa eða yfir því að velja alltaf lægsta mögulega samnefnara þegar kemur að tíma, undirbúningi eða virðingu fyrir kjósendum. Það er ekki lýðræðisleg dyggð að keyra fullveldismál í gegn um sumarleyfistíma. Vönduð þjóðaratkvæðagreiðsla krefst þess að þjóðin geti kynnt sér málið, rætt það og skilið hvað atkvæði hennar þýðir. Við treystum þjóðinni. Einmitt þess vegna viljum við gefa henni þann tíma sem hún á rétt á. Þess vegna greiðum við atkvæði með breytingartillögunni.