þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Á sama tíma og ég tek undir með hv. formanni utanríkismálanefndar, Pawel Bartoszek, þá vil ég segja það um dagsetninguna og frestunina að það hefur ekki verið dregið fram hvers vegna það væri æskilegt að fresta þessu og þar af leiðandi get ég ekki stutt þessa tillögu. Hér talar fólk um að sumarleyfistíminn sé heilagur. Það stóð ekki á stórum hluta þessa þingheims að ræða hér veiðigjöld langt fram á sumar í fyrra og ég veit að þeir hv. þingmenn sem standa að þessari breytingartillögu fara ekki í sumarfrí í sinni pólitík frekar en nokkur annar hér í þessum þingsal. Í áliti meiri hluta utanríkismálanefndar eru markmið Íslands skýr. Þetta verður þjóðin upplýst um. Ég býst við málefnalegri og snarpri umræðu í sumar og hlakka til að taka þátt í henni.