157. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[16:03]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Hvaða þvæla er það sem mönnum er boðið upp á í þingsal við atkvæðagreiðslu um þessa breytingartillögu að það hafi ekki komið fram nein rök? Það hafi ekki verið orðuð hér nein rök fyrir þessari tillögu? Rétt áður en hv. þm. Dagbjört Hákonardóttir kom hér í atkvæðaskýringu hafði hv. þm. Guðrún Hafsteinsdóttir staðið hér og rutt upp úr sér rökum. Þetta hefur verið rætt og ef hv. þingmenn stjórnarflokkanna hefðu verið viðstaddir umræðuna þá hafa menn einmitt verið að benda á það hversu furðulegt og óheppilegt það er að hafa þessa þjóðaratkvæðagreiðslu um sumartímann. Það hefur ekki verið gerð tilraun til þess að útskýra það fyrir þingheimi af hverju þessi furðulega dagsetning er valin. Þetta er fordæmalaust. Það er fordæmalaust að það sé haldin þjóðaratkvæðagreiðsla um mál sem þetta og það er algjörlega fordæmalaust að menn hendi yfirleitt í kosningar sisvona á þessum tímapunkti. Menn hafa ekki einu sinni getað svarað því hvenær utankjörfundaratkvæðagreiðsla byrjar. (Forseti hringir.) Hvenær á að auglýsa þessa þjóðaratkvæðagreiðslu? Landskjörstjórn hefur í hendi sér að gera það og þjóðaratkvæðagreiðslan getur þess vegna hafist í næstu viku. (Forseti hringir.) Ég veit að hv. þingmenn hafa áttað sig á því að hér hefur ekkert verið rætt um þetta og það er rakalaus þvættingur að halda því fram að þessi breytingartillaga sé ekki rökstudd.

(Forseti (ÞSv): Forseti bendir hv. þingmönnum á að ræðutíminn þegar gerð er grein fyrir atkvæði sínu er ein mínúta.)