157. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[16:05]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F):

Virðulegur forseti. Eins og sést á töflunni þá sitjum við í Framsókn hjá við þessa atkvæðagreiðslu. Það er ekki vegna þess að við séum ekki með nægileg rök fyrir að seinka málinu. Við höfum bent á að málið hefði þurft miklu meiri undirbúning af hálfu framkvæmdarvaldsins og síðan þingsins. Við höfum bara enga trú á því að hvorki ríkisstjórnin né meiri hlutinn hér í þinginu ætli sér það. Þess vegna hefði í sjálfu sér verið best að kjósa á morgun. Forsætisráðherra hefur sagt að það þurfi enginn að vera sérfræðingur í málefnum Evrópusambandsins til þess að fara til þessarar þjóðaratkvæðagreiðslu. Hins vegar er það á ábyrgð ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu sem er illa undirbúin, illa rökstudd og ekkert ákall um í samfélaginu. Það er á þeirra ábyrgð að fara af stað í þessa vegferð. Þess vegna ætlum við að sitja hjá við þessa dagsetningu, einfaldlega vegna þess að við höfum enga trú á því að meiri hlutinn og ríkisstjórnin ætli sér að bæta sinn undirbúning að upplýsingagjöf til þjóðarinnar.