157. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[16:06]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Ef viljinn er að sjá til þess að þjóðin fái eins litlar upplýsingar og mögulegt er, að umræðan verði eins lítil og mögulegt er og að staðreyndirnar liggi alls ekki á borðinu, hvað gerum við þá? Þú setur málið ekki í samráðsgátt, þú lætur sveitarstjórnarkosningar koma inn í miðja umræðu og þú heldur kosningar um sumar þegar fólk er vonandi að gera eitthvað skemmtilegra en að vera í pólitískum þrætum. Það er bara þannig. Það er öllum ljóst hver tilgangurinn er. Við þekkjum það að hafa þurft að slást fyrir hverju einustu upplýsingum. Það var ekkert lagt fyrir þing eða þjóð í upphafi; ekkert í samráðsgátt, ekkert af því sem var lofað fyrir kosningar. Menn ætla síðan bara að halda þetta 29. ágúst og vona að fólk setji sig alls ekki inn í málið. Svo ætla menn með gervimönnum Viðreisnar og pítsuauglýsingum stjórnarliða að fá málið í gegn.

Virðulegur forseti. (Forseti hringir.) Það er óábyrgt að segja nei við þessu en fólk mun samt sem áður sjá í gegnum þetta og það verður nei í haust.