157. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[16:08]
Horfa

Ingvar Þóroddsson (V):

Frú forseti. Ég hef heyrt því fleygt fram í þessari umræðu að það sé að einhverju leyti óhefðbundið að ganga til kosninga að sumri til. Þá vil ég rifja upp að sjálf stjórnarskráin kveður á um að forsetakosningar skuli fara fram í júní eða júlí. Eins og hv. þm. Pawel Bartoszek kom inn á þá hefur landskjörstjórn eða aðrir aðilar ekki gert athugasemdir við þessa dagsetningu, 29. ágúst. Persónulega er mér annt um að þátttaka yngri kjósenda verði sem mest í þessari atkvæðagreiðslu og að þeir hafi svigrúm til að kynna sér málið til hlítar. Það er mín sannfæring að seint að sumri til eða snemma að hausti til sé besti tíminn fyrir þann aldurshóp. Ég segi þar af leiðandi nei við þessari breytingartillögu.