þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Forseti. Engin haldbær rök hafa verið færð fyrir því af hverju þessi þjóðaratkvæðagreiðsla ætti að fara fram 29. ágúst. Það er stysti mögulegi tími sem kosningalögin leyfa þessari ríkisstjórn að fara í atkvæðagreiðslu. Af hverju velur ríkisstjórnin það? Af hverju? Það er þvættingur að segja að það hafi ekki verið gerðar athugasemdir við þetta. Landskjörstjórn varaði við þessu. Feneyjanefndin leggur áherslu á mikilvægi upplýsingagjafar. Við vitum öll að auðvitað verður sú upplýsingagjöf af skornum skammti þegar nota á minnsta mögulega frestinn sem kosningalögin leyfa.
Virðulegur forseti. Það er ljóst á þessari töflu að meiri hlutinn ætlar ekki að verða við þessari málefnalegu, vel rökstuddu og góðu tillögu um að seinka þessari atkvæðagreiðslu. Þess vegna held ég að það sé óhjákvæmilegt annað en að fara fram á það, frú forseti, að forseti kalli þing saman í aðdraganda þessarar þjóðaratkvæðagreiðslu þar sem ráðherrar þessarar ríkisstjórnar geta verið til svara og rætt verður um þær upplýsingar sem þá eru fram komnar.