þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Það er afar mikilvægt að þing sé komið saman áður en við förum í þessa atkvæðagreiðslu í sumar og því tek ég undir tillögu hv. þm. Bryndísar Haraldsdóttur um að boða hér þingstubb í ágúst ef ekki verður breyting á þessu, sem virðist ekki vera miðað við töfluna hér. Við þingmenn erum fulltrúar þjóðarinnar og þess vegna er það í raun ótrúlegt að það skuli ekki vera þing, þótt það sé ekki nema í stuttan tíma, fyrir eina mikilvægustu atkvæðagreiðslu sem þjóðin hefur farið í á síðustu árum, kannski fyrir utan Icesave. Ég vil hvetja hæstv. forseta til að taka ábendingum hv. þm. Bryndísar Haraldsdóttur um þingstubb fyrir atkvæðagreiðslu í sumar og minna á það að við erum fulltrúar fólksins í landinu (Forseti hringir.) og við erum í vinnu fyrir fólkið í landinu. Þess vegna er mikilvægt að við höfum þing fyrir þessa atkvæðagreiðslu.