157. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[16:12]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Árið 2009 gagnrýndi hv. utanríkisráðherra vinnubrögð Jóhönnustjórnarinnar og sagði, með leyfi forseta:

„Það er alveg ljóst að þessi tillaga sem upphaflega lá frá ríkisstjórninni og var flutt af utanríkisráðherra og við sjáum af nefndaráliti meiri hlutans, að upphaflega uppleggið sem lagt var fram af hálfu utanríkisráðherra var ekki burðugt.“

Við hv. utanríkisráðherra erum sammála um að það er ótækt að ríkisstjórn og ráðherrar leggi fram svo óvandaða tillögu. Sagan endurtekur sig og meiri hlutinn reynir nú að bæta fyrir hroðvirknisleg vinnubrögð hæstv. ráðherra og koma til móts við alvarlegar athugasemdir landskjörstjórnar og Feneyjanefndar en gengur ekki nógu langt. Þegar þjóð er kölluð til atkvæðagreiðslu um svo stórt mál verður spurningin að vera hafin yfir allan vafa. Stjórnarandstaðan leggur því til skýrt orðalag sem er hafið yfir allan vafa þegar þjóðin verður spurð. Við leggjum til burðuga tillögu ólíkt hæstv. utanríkisráðherra og meiri hlutanum.