þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Já, hafin yfir allan vafa. Breytingartillagan sem meiri hlutinn leggur fram er hafin yfir allan vafa eða alla vega sú spurning sem þar er. Hér er lögð til önnur útgáfa af spurningunni. Það kom mér dálítið á óvart að sjá hv. þm. Guðrúnu Hafsteinsdóttur leggja til í ræðu að spurningin yrði einfaldlega: Viltu ganga í Evrópusambandið? Það er útgáfa af spurningunni sem Feneyjanefndin sjálf sló að fyrra bragði út af borðinu. Þessi tillaga sem hér er undir er vissulega ekki þannig. Hér er spurt um hvort eigi að ganga til viðræðna og sú spurning er vissulega tæk, bæði samkvæmt landskjörstjórn og Feneyjanefndinni, en meiri hluti SEN taldi að þessi tillaga gæti að mati meiri hlutans gefið til kynna að viðræður væru á upphafsreit og jafnvel að sækja þyrfti um að nýju. Ríkisstjórn Íslands lítur ekki svo á að þess sé þörf og í því ljósi og vegna þess að yfirlýsingar í þingsal gefa ekki til kynna að þessi breytta spurning myndi auka stuðning við tillöguna þá segi ég nei, frú forseti.