þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Þetta er samhljóða tillögu minni hlutans í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd sem við, minni hlutinn í utanríkismálanefnd, sammæltumst um að leggja hér fram, enda er hún að okkar mati miklu skýrari í þeirri vegferð sem ríkisstjórnin er að fara af stað í, hreinlega: Á Ísland að ganga til aðildarviðræðna við Evrópusambandið? Ég get alveg rökstutt það að tillaga meiri hlutans sé heldur ruglingslegri og veki upp spurningar sem ég mun gera á eftir þegar hún kemur væntanlega til atkvæðagreiðslu, sýnist mér á þessari atkvæðagreiðslu. En við í Framsókn styðjum að sjálfsögðu þetta. Þetta er skýrara. Þeir sem koma til með að segja já í fyrirhugaðri þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst er fólk sem vill ganga í Evrópusambandið eða fólk sem ætlar að treysta ríkisstjórninni þrátt fyrir þá vegferð sem hún er á. Engin rauð strik, engin skýr, skilyrt samningsmarkmið og illa undirbúið mál. Þess vegna hefði þessi spurning verið betri.